Nýja platan okkar Exile Republic kemur í verslanir á Fimmtudag, af því tilefni verður haldið hlustunarpartý á Bar 11 á fimmtudagskvöld sem hefst stundvíslega kl.21, Húsið opnar kl 20, Öl og alles og þér og þínum er boðið.
Menn Ársins verða með tónleika á Domo Bar, þriðjudaginn 30. okt. n.k. og hefjast þeir upp úr kl. 21.
Mennirnir ætla að frumflytja glæný lög eftir þá sjálfa. Tónleikarnir eru n.k. generalprufa áður en þeir skella sér í hljóðverið til að hljóðrita lögin.
Það væri okkur sannkallaður heiður ef þú sæir þér fært um að mæta á þriðjudaginn á Domo.