Við vildum bara minna á eftirfarandi dansiball. Lukku Láki, 24. maí, beint eftir að Íslandi hefur loksins tekist að vinna Evróvisjón og við erum að búast við þér á staðnum í hörku stuði! Við lofum að spila ekki eitt einasta Eurovision lag, þar sem við vitum að landinn verður kominn með hundleið á þeim þegar líða tekur á nóttina ;)
Jæja kæru vinir, ég tel það nokkuð víst að þið eigið eitthvað nýtt efni sem bíður óþreyjufullt eftir að fá að komast á myspace svo við sem teljum okkur æsta aðdáendur getum heyrt það?:)
Við vildum bara minni á að við spilum ekki á laugardaginn næsta á Hressó eins og áætlað var vegna .. jah, vitleysu. En við munum í staðinn halda feitt partí í buxunum okkar á föstudeginum 25. apríl á sama stað, Hressó. Endilega, ekki mæta á laugardaginn, sparaðu þig frekar fyrir 25. apríl .. það verður miklu skemmtilegra, við lofum!!
Dísel spila á Lundanum (Vestmannaeyjum) helgina 22.-23. febrúar. Ef þú átt leið hjá, hefur aldrei komið til Eyja áður eða átt heima við hliðiná Lundanum er þetta kjörið tækifæri fyrir þig og þína að henda sér í fínu fötin og kíkja á ball! Ekki er það nú verra þegar gleðigjafarnir og sprellidollurnar í Dísel eru nálægar!