Kórinn var óformlega stofnaður á haustmánuðum árið 2006 þegar Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri heimtaði að karlakór myndi syngja í afmælinu hans.
Síðan þá hafa margir bæst við í kórinn og eru menn með smekk fyrir fallegu kvenfólki og félagskap hvers annars hvattir til að taka þátt. Kórinn samanstendur aðallega af Vestfirðinum þó kjarninn sé frá Flateyri. Í Kórnum eru líka nokkrir Reykvíkingar sem allir eiga það þó sameiginlegt að þekkja fjöllin fyrir Vestan með nafni og/eða hafa drukkið sjálfa sig undir borðið á Þorrablóti á Vestfjörðum.
Til hamingju með plötuna! - komið endilega með hana í Landsbókasafnið til varðveislu. Á MySpace-síðu okkar eru meiri upplýsingar um safnið og tilgang þess. Bestu kveðjur úr tón- og myndsafni :)
Já sælir bræður, ljómandi skemmtilegt hjá ykkur. Kíkkið endilega norður með hljómleika..ættum kannski að samhljóma ..FjallaHvanndalsbræður ......hljómar vel.