Dömur og herrar, búist er við komu hins franskættaða dansmanns Dj FEX föstudaginn 8. febrúar í tilefni eins árs afmælis Barcode. FEX ætlar að koma hingað og spila fyrir okkur sálarfulla tekknó-, hús- og aðra dansmúsík í hinum glimrandi skemmtiklúbbi Organ..
Ykkur að segja var Fex leiður og hvekktur þegar hann sat á bekk á CDG flugvelli Parísarmanna þann 14. desember síðastliðinn og beið og beið og vonaðist eftir góðum flugfregnum frá Íslandi..
en allt kom fyrir ekki, í fyrsta skipti í háa herrans tíð bárust fregnir af því að allt flug lægi niðri vegna mestu óveðra í seinni tíð hér á klakanum. við vonum að flugmenn Icelandair verði nógu hugrakkir til að fljúga þann 8. febrúar.
Við í Barcode höfum fylgst með þessum gæðapilti um nokkurt skeið, og að okkar mati er hann fullkominn kandídat í að kynna þá stefnu danstónlistar sem er okkur best að skapi. Til gamans geta að Barcode náði tali af Marc Romboy sem spilaði á árslistakvöldi Partyzone í janúar við mikla kátínu viðstaddra, og sagði Romboy að Dj FEX væri einn allra besti plötusnúður sem hann hefði nokkurntíma spilað með.
Mixið (linkurinn) hér að neðan hefur að geyma lög og remix eftir F.E.X. endilega kynnið ykkur kappann, en besta leiðinn til að upplifa F.E.X. er samt sem áður að sjá hann á klúbbi.
FEX tracks
Komdu og taktu þátt í gleðinni, hristum saman bossana umvafin músík í hæsta gæðaflokki, á skemmtistað í hæsta gæðaflokki.
1000 kr. fyrir kl. eitt, en 1500 eftir það.
20 ára aldurstakmark
Dans er lífið.
Barcode
Endilega komdu við á síðuna mína ég setti fram smá tímalínu sem að gæti vakið áhuga þinn þeas uppruna Germanískrar menningar frá um 100 AD til um 1400 AD.
Takk takk... maður er náttla partur af netinu sko.... það er alveg ljóst!!! :o)) Takk fyrir addið, við skólafólkið náttla stöndum saman í þessu öllu saman, ekki spurning. Later Maxa
Jæja Kiddi minn....þar fer að koma tími á sígó er það ekki???hehehe djísus hvað það er skrýtið að vera ekki að hittast á hverjum degi:/ Þetta var nú nebblega orðinn fínn vani;)