Photo of Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Comments

Post a comment...

Badges

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hasn't earned any badges yet... have you?

Interests

  • General

    Hlaup, hreyfing, hittast og skemmta sér.
  • Heroes

    ..

Blurbs

About me:

Kvennahlaupið er spennandi samkoma á hverju ári, þar sem konur á öllum aldri hittast og skemmta sér saman. Markmiðið er að skapa skemmtilegan vettvang fyrir konur til að hittast og minna hver aðra á mikilvægi hreyfingar og hvað það er gaman að skokka saman.

Konur á öllum aldri taka þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ, allt frá litlum stelpum í kerrum til langamma þeirra sem láta sig ekki vanta.

Markmið Kvennahlaupsins frá upphafi er að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Hver kona tekur þátt á sínum forsendum. Því er engin tímataka í Kvennahlaupinu og lögð er áhersla á að hver kona komi í mark á sínum hraða og með bros á vör.

Tekið á því í Garðabæ -upphitun fyrir Sjóvá Kvennahlaupið 2007.

Við rákumst á þennan föngulega karlmann í Borat galla á Sjóvá Kvennahlaupinu í Mosfellsbæ. Hann heitir Ingvar og er að fara að gifta sig.

Myndskeið úr myndbandaleiknum okkar, þar sem vistmenn á Seljahlíð undirbúa sig fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ Vistmenn á Seljahlíð við undirbúning fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Við fengum fullt af skemmtilegum myndskeiðum fyrir Kvennahlaupið, og ætlum að halda áfram að safna frásögnum og upplifunum tengdum Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ.

Hressar úr Hafnarfirði

Taktu mynd eða taktu upp myndskeið á símann eða litlu stafrænu myndavélina þína og sendu á kvennahlaup@sjova.is.

Gæðin skipta ekki máli, aðalmálið er að gleðja aðra með skemmtilegri og áhugaverðri upplifun sem þú vilt deila með okkur.

Hanna Ólafsdóttir segir okkur frá hvernig hún grennti sig og kom sér í form.

Sendu okkur þitt myndband utan af landi, eða utan úr heimi á kvennahlaup@sjova.is! Gönguhópurinn Áttavilltar úr Þingeyjarsýslu.

Dregið var úr myndbandaleik Sjóvá Kvennahlaupsins í beinni útsendingu á Rás 2 rétt eftir kl. 14, og hlaut gönguhópurinn Áttavilltar úr Þingeyjarsýslu dekurdag fyrir 8 manns í Baðhúsinu.

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt, og lögðu fram skemmtileg innlegg í leikinn. Við höldum áfram að safna myndskeiðum og hvetjum þig eindregið til að senda inn myndskeið á kvennahlaup@sjova.is

Trimmklúbbur Seltjarnarness á æfingu fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í ár -alltaf hress í TKS .. ..

Who I'd like to meet:

Details

  • Status: Single
  • Zodiac Sign: Cancer

Login

Forgot password?

Need an account? Sign up