Dagskráin var skipuð nokkrum þeirra hljómsveita sem hafa komið fram á Rosenberg í gegnum tíðina og sett svip sinn á staðinn:
Nú er svo komið að eitt helsta vígi íslenskrar tónlistarmenningar riðar til falls. Café Rosenberg, sem er sá staður sem hefur veitt ungum og upprennandi tónlistarmönnum hvað flest tækifæri og mest frelsi undanfarin ár, skemmdist illa í bruna og er tvísýnt með framhaldið. Þess vegna hafa velunnarar staðarins ákveðið að taka höndum saman og safna nægu fé til að byggja staðinn upp að nýju. Þessi hópur fólks kallar sig Tryggingasamsteypu Þórðar Pálmasonar, og berst líka fyrir því að Þórður, betur þekktur sem Doddi á Rosenberg, fái að halda áfram því óeigingjarna starfi sem hann hefur unnið í þágu íslenskrar tónlistar undanfarin ár.
Hér má finna undirskriftarlistann (Here you can find the petition list online, a petition to the city officials to allow Rosenberg to stay in the same space, and allow Doddi to keep up the good work he has been doing for the icelandic music scene. The place is now renowned for the lively and unique atmosphere and musical activity, and we feel it is vital to the musical culture of the city to keep Doddi firmly in his place.)
Litlu jól VoxFox verða haldin á Café Rosenberg (Klapparstíg 25) 22. desember. Vandamenn, vinir, kunningjar og ókunnugir eru jafn hjartanlega velkomnir. Tónleikarnir hefjast 21:30 og aðgangseyrir er 1000 kr. Miðasala verður við innganginn. Athugið að posi er ekki á staðnum en hraðbanki er í grenndinni.
Framundan eru tónleikar hjá okkur í VoxFox þar sem góðir gestir munu einnig koma fram, en það eru eðallistamennirnir Páll Óskar Hjálmtýsson, Monika Abendroth og Kristjana Stefánsdóttir. Búist er við miklu eyrnakonfekti, nýju efni og öðru góðgæti svo látið þetta tækifæri alls ekki fram hjá ykkur fara.
Veislan hefst þriðjudaginn 2. september klukkan 20:30 og verður haldin á nýjum Café Rosenberg sem er staðsettur á Klapparstíg 25. Aðgangseyrir er 2000 kr. og er miðasala við innganginn.
Okkur langar einnig til að vekja athygli á því að nú í september höldum við til Svíþjóðar á alþjóðlegt a cappella mót á vegum tveggja af virtustu raddböndum heims: Real Group og Rajaton. Nokkrir tugir hópa hafa boðað komu sína á mótið. Af þeim voru aðeins níu raddbönd valin til að taka þátt í masterklass og halda tónleika og erum við þeirra á meðal. Við erum að vonum afar stolt yfir þeim árangri =) Reykjavík Loftbrú styrkir okkur til fararinnar. Sjá nánar um mótið á http://www. therealfestival. com
Vonumst til að sjá sem flesta =) Með kveðju, VoxFox
Næstkomandi sunnudag (25. nóvember) verðum við með tónleika í Listasafni Íslands. Tónleikarnir hefjast klukkan 18. Efnistök eru fengin víða að en heildarsvipur tónleikanna verður í hugljúfari kantinum og ætlar Monika Abendroth að leika með okkur á hörpu. Einnig verður frumflutt verk eftir Hreiðar Inga. Miðaverð er 1500 kr. en 1000 kr. fyrir börn og eldri borgara.