Bókanir og almennar upplýsingar í síma 867-0050 (Venni).
Viltu fylgjast betur með Dísel?
Þú getur fylgst betur með Dísel á auðveldan máta. Skráðu þig hér fyrir neðan og við sendum þér SMS og/eða tölvupóst með upplýsingum um hvað er að gerast hjá okkur á næstunni! Með þessu móti getur þú auðveldlega fylgst með hvort eitthvað sé að gerast hjá Dísel.
Hvað er Dísel?
Disel is an Icelandic band, so this text will be written in Icelandic, at least for the time being. To learn Icelandic, please go to Iceland and ask some one at Hlemmur what "Harðfiskur" means and if it's any good. You'll get far in life with the Icelandic language by your side.
Hljómsveitin Dísel hefur, þrátt fyrir ungan aldur, látið mikið fyrir sér fara. Síðla ársins 2008 gáfu þeir piltar út endurútsetningu á tímalausa slagaranum „Stál og hnífur“ eftir Bubba Morthens sem vakti mikla lukku. Hljómsveitin tók þar næst þátt í keppninni „Sumarsmellur FM 95,7“ hjá fyrrnefndri útvarpstöð og hafði þar sigur úr bítum með laginu „Sumar á ný“ en það kom sér vel fyrir sumar þyrsta landsmenn sem aldrei höfðu verið jafn nálægt því að falla í þunglindi yfir endalokum sumarsins.
Á böllum eru þeir Dísel-trukkar þó bestir því þar skarta þeir afburða góðum hljóðfæraleikurum með einn af helstu söngvörum landsins í fararbroddi. Eiríkur Hafdal (Eiki), söngvari hljómsveitarinnar, sem átti hjörtu landsmanna í Idol keppninni hér forðum daga stendur fremst á sviði og tryllir æstan lýðinn með skemmtilegri sviðsframkomu og raddbeitingu. Við hlið hans stendur Vernharður Bjarnason (Venni), gítarleikari, en hann er oftar en ekki kenndur við Durex þegar kynlífssjúkt kvenfólkið bankar uppá hjá honum. Venni spilaði lengi vel með hljómsveitinni Sólon en hætti þar síðla árs 2007. Við hlið Venna stendur Andri Þór Ólafsson (Sjúddan), bassaleikari, en hann hefur leikið með mörgum tónlistarmanninum og er nýlega kominn frá stórborginni Lundúnum þar sem hann stundaði nám við bassaleik. Fyrir aftan þá fyrrnefndu situr Magnús Ingi Sveinbjörnsson (Maggi Trymbill), trommuleikari, en hann stundar nám við FÍH og hefur leikið með hljómsveitum á borð við Envy of Nona, 6íJazz o.fl.
Dísel-tankarnir stefna að því að hrista rækilega upp í æstum múgnum á komandi árum og munt þú því, kæri lesandi, af öllum líkindum dansa af þér bossagatið með Díselinn í botni áður en þú getur sagt „Sjúddan bara!“
Studio Undraheimar Vid bjóðum uppá Ódýrar upptökur fyrir tónlistarfólk í frábærum Gæðum við góðar Aðstæður! VOR-TILBOÐ!! Til 15 Maí ætlum við að bjóða alla þjónustu á hálfvirði. Klukkutíminn dettur úr 5ooo kr niður í 2500 Kr!! Gríptu tækifærið!!! Hringudu núna og pantaðu tíma !! Hafþór B Jóhannsson - 661 2701 email - hbj99@hotmail.com Við erum með opið hús Mið-föst milli 13-15. endilega kíktu í kaffi og skoðaðu aðstæður!! Við bjóðum einnig uppá Gítarviðgerðir.Hringdu endilega og til að fá nánari upplýsingar. Snorri Halldórsson - 848 6442 NÚNA ER TÆKIFÆRIÐ:) Stodio Undraheimar - Starmýri 2.
HELLO DISEL!--THANKS FOR THE FRIEND REQUEST!...I SECOND THAT...WHATEVER YOU WERE SAYING!...??????,,ANYWAYS-- HOWS ICELAND DOING THESE DAYS??...DB/NJ/USA!
Just wanted to stop by and wish you guys Gledileg Jol and wanted to say a special thank you to Magnus for helping me with an Icelandic translation I wanted. Skal to all of you for a fantastic New Year. You all sound good on your playlist.